Thursday, November 22, 2007


Er með vinkonu heimþrá! Mig langar að leika við skemmtilegustu konur Íslands!
Oþarfi að telja upp nöfn, þið vitið hverjar þið eruð.
Nú er Katerína í Barcelona að skemmta sér og ég er að hlusta á brjálaða disco tónlist blekkjandi sjálfa mig um að það sé brjálað party í gangi.
Ég eyddi deginum í að horfa á ,,Jesus Camp'' með Philip og ræða hversu snar* geðveikt fólk er til í heiminum.
Virkilega tæp heimildarmynd um trúarofstækisfulla kana- mæli með henni.
Svo gekk ég um Thissio svæðið sem er nálægt Akropolis með Ceidí, hundinum hans Philip.
Hún er voða sæt og merkilegt nokk, hefur brætt klakana sem umvöfðu tilfiningasnauða hjarta mitt gagnvert hundum.
Hún kemur mér þó stundum í einstaklega vandræðalegar aðstæður.
Hún er ekkert svo vel upp alin, rosalega dekruð en sæt...hún má eiga það.
Þegar ég fer ein með hana í göngutúra tekur hún upp á því að gera þarfir sínar á miðri götu umkringd vegfarendum sem horfa á mig og hrista hausinn og mig langar að deyja úr skömm og get því miður ekki sagt ; ,, Oj, nei sko ég á hana ekki '' þegar ég held í ólina hennar með eldrautt fés.
Hundar kunna sig ekki.
Ég sagði upp í vinnunni sem gengilbeina og er eins og stendur atvinnulaus.
Þegar ég er atvinnulaus hugsa ég alltaf vandlega um að selja eitt nýra.
Hvað ætli ég gæti fengið raunvörulega mikinn pening/ gull fyrir eitt
íslenskt-eðal -hvítvínslegið nýra?
Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga.

Er að reyna finna Önnu Birtu sem að stundaði líkamsrækt eitt sinn. Hún er því miður týnd, heimilislaus og ég vil gjarna biðja hana að koma heim.
Nenni ekki að hreyfa mig.. er svo glöð þegar ég komin gírinn en er í latabæ sem stendur.
Ég sendi fingurkossa yfir höf og höfuð og bið um fleiri komment frá skemmtilegu fólki.

Ab án abs.

Tuesday, November 20, 2007







Katerína er að fara á morgunn. Ég heyri tilhlökkunina í grátkirtlunun mínum sem fá mikið út úr því að framleiða tár og ekka. Ég hugsa nú að flestir sem þekkja mig vel vita að ég er grátdrottningin! Fékk aðeins of mikið af tilfiningum í bakpoka lífsins og veit að það verður grátveisla á morgunn.
Katerína er blíðust, björtust, skemmtilegust , klárust og fallegust.
Hún er með einstaklega misheppnaðan húmor og fær mig þess vegna til þess að emja úr hlátri alla daga, hún er hörkutól og kennir mér að vera sterkari ... vá ég ætti eiginlega bara að fara í fangið á Opruh og gera þetta alminnilega með tónlist, myndavélum og tilheyrandi...buhuhuh...hú.
Verð að koma mér úr þessari vælu deild!

Ok. Ég á eftir að sakna Katerínu og í stað þess að vera of hjartnæm ætla ég að segja töffara sögu af henni systur minni sem hlýnar mér um hjartaræturnar.
Síðasta sumar vorum við systurnar staddar á fabjúlús dansiballsklúbbi í Glyfaða.
Við hrisstum okkur í takt við dynjandi dansi-dansi-tónlist og skemmtum okkur konunglega.
Það var að sjálfsögðu troðfullt og fylltst staðurinn ennþá meira þegar her af ofþjálfuðum fótboltaköppum gekk inn á dansgólfið og byrjuðu að heilla dömurnar.
Jæja Katerína fer að spjalla við eh gaur sem var þokkalega hávaxinn og massaður og virtist góður til undaneldis (ekki lengi muhaha) í minningunni.
Þau dansa eh saman og spjalla og fara aðeins frá vakandi augum ofverndandi stóru systur, ÖB.
Stuttu síðar kemur Katerína þrammandi að mér skjótandi neistum í augunum og segir mér að gaurinn hafi verið algjör aumingi og reynt að káfa á henni ósentilmannslega.
Ég tjúnast að sjálfsögðu upp og segji nokkur óvönduð orð og hyggst berja mann og annann.
Þá segir Katerína mér að hún hafi tekið utan um hreðjarnar á náunganum og kreist og sagt svooo skemmtilega ,, Do you want to have children in the future?!!!!''
Vinurinn var fljótur að láta sig hverfa og hugga fjölskyldudjásninn.

Það eru til margar góðar sögur af henni Katerinu en þessi er bara heit!
Damn fine woman!
Jæja ætla nú að hjálpa henni við niður pakk, við erum báðar ofur sjúskaðar með skítugt hár og í ólekkerum illa þreyttum fatnaði.Þess vegna ætla ég að finna nokkrar vel valdar glans myndir af okkur til að blekkja okkur um körrenta átlúkkið.

PS
Var vör við óþægilega margar stafsetningarvillur í fyrri bloggum og bið lesendur mína að vera alveg sama eins og mér. Ég vil einnig þakka fyrir skemmtileg komment, ég vil fá fleiri!
Ást og ostur.